Tuesday, May 10, 2011

22 rue de la Paix

Það ættu allir að kynnast þessari Parísaraddressu en þarna eru höfuðstöðvar Repetto til húsa. Ballerínuskór eru í miklu uppáhaldi hjá mér og þessir eru þeir allra bestu. Er mjög fegin að hafa keypt nokkur pör fyrir hrun (ansi dýrir núna), sem eru því miður að spænast upp og ég neyðist því að fara bráðum til Parísar að endurnýja birgðirnar. Það er bara ekkert betra en að ganga berfættur í ballerínuskóm á sumrin.
Ég á eins og þessa svörtu efstu. Ótrúlega þægilegir.
Á líka svona, þessir eru spari. Keyptir í höfuðstöðvunum.

Kannski bláir blári glansskór verði næstir í safnið? Eða svartir?
Á líka svona, held þeir séu bestir.





Gainsburg var líka hrifinn af Repetto.
Hann notaði þessa gerð, Zizi.

2 comments:

  1. Ætti ég að tékka á þessu næst þegar við erum í París?

    ReplyDelete
  2. Já mér finnst það. Þú værir flottur í Zizi.

    ReplyDelete